19 nóv. 2015Ívar Ásgrímsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins, stýrir stelpunum í fyrsta sinn í undankeppni Evrópumótsins, þegar liðið hefur keppni í E-riðli undankeppni Evrópumótsins 2017. Framundan eru leikir við Ungverjaland og Slóvakíu sem eru fyrstu leikir íslensku stelpnanna í undankeppni EM 2017. Íslenska liðið mætir Ungverjalandi á útivelli laugardaginn 21. nóvember og tekur síðan á móti Slóvakíu í Laugardalshöllinni fjórum dögum seinna. Ívar Ásgrímsson er á sínu öðru ári í þessari törn sem þjálfari kvennalandsliðsins en hann þjálfaði einnig liðið á árunum 2004 til 2005. Þetta verður samt í fyrsta sinn sem hann fer með liðið í Evrópukeppni. Íslenska kvennalandsliðið fór fyrst í Evrópukeppni 2006, haustið eftir að Ívar hætti með liðið og tók síðast þátt í Evrópukeppninni haustið 2009. Ívar hefur tvisvar stýrt liðinu í Evrópukeppni Smáþjóða en þegar hann stýrir liðinu á móti Ungverjum og Slóvökum kemst hann í hóp með þremur öðrum þjálfurum sem hafa þjálfað kvennalandsliðið í Evrópukeppni. Guðjón Skúlason var fyrstur til að þjálfa kvennalandsliðið í Evrópukeppni og hann er einnig sá sem hefur stýrt liðinu í flestum Evrópuleikjum (6) og fagnað sigri í flestum Evrópuleikjum (2). Hinir tveir þjálfarnir sem hafa stýrt stelpunum í Evrópuleikjum eru þeir Ágúst Björgvinsson og Henning Henningssn sem skiptu síðustu undankeppni liðsins á milli sín. Flestir Evrópuleikir þjálfara íslenska kvennalandsliðsins: Guðjón Skúlason 6 (2 sigrar) Ágúst Björgvinsson 5 (1 sigur) Henning Henningsson 5 (1 sigur)
Ívar verður fjórði þjálfarinn til að stýra kvennalandsliðinu í Evrópukeppni