16 nóv. 2015Þrjár af fjórum stigahæstu landsliðskonum ársins verða ekki með Þrír fastamenn í íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta geta ekki tekið þátt í fyrstu leikjum liðsins í undankeppni EM 2017. Þetta eru þær Hildur Björg Kjartansdóttir, Sara Rún Hinriksdóttir og Margrét Rósa Hálfdanardóttir sem stunda allar nám í Bandaríkjunum. Íslenska kvennalandsliðið mætir Ungverjum út í Ungverjalandi laugardaginn 21. nóvember og tekur síðan á móti Slóvakíu í Laugardalshöllinni miðvikudagskvöldið 25. nóvember. Fjarvera þeirra Hildar, Margrétar og Söru er mikill missir fyrir íslenska liðið enda eru þær þrjár af fjórum stigahæstu leikmenn íslenska liðsins á árinu 2015 þegar litið er á meðalskor í leik. Saman hafa þessar þrjár skorað 28,7 stig að meðaltali í landsleikjum sínum á árinu. Margrét Rósa Hálfdanardóttir er á sínu öðru ári með Canisius College og þar er Sara Rún Hinriksdóttir á sínu fyrsta ári. Hildur Björg Kjartansdóttir er á sínu öðru ári í The University of Texas Rio Grande Valley þótt hún sé að spila í fyrsta sinn undir þeim merkjum. Hildur Björg var í fyrra í The University of Texas–Pan American en hann sameinaðist The University of Texas at Brownsville í sumar og myndaði hinn nýja skóla í suður Texas. Margrét Rósa og Sara Rún spila með Canisius-háskólaliðinu bæði keppniskvöld íslenska landsliðsins í nóvember, fyrst laugardaginn 21. nóvember á móti St. Francis og svo miðvikudagskvöldið 25. nóvember á móti Binghamton. Þetta verða þriðji og fjórði leikur liðsins á tímabilinu og jafnframt tveir fyrstu heimaleikirnir.   Hildur Björg spilar á laugardeginum með UTRGV á móti Eastern Michigan University og fer sá leikur fram á útivelli en þriðjudaginn á eftir spilar liðið við University of California Santa Barbara og fer sá leikur fram í Kaliforníu. Flest stig að meðaltali í landsleikjum ársins 2015: Helena Sverrisdóttir · 18,3 stig að meðaltali í leik Hildur Björg Kjartansdóttir* · 10,7    Sara Rún Hinriksdóttir* · 10,5    Margrét Rósa Hálfdanardóttir* · 7,5    Sigrún Sjöfn Ámundadóttir  · 7,2    Pálína Gunnlaugsdóttir · 6,7    Gunnhildur Gunnarsdóttir · 5,7    Bryndís Guðmundsdóttir  · 5,5    *Komast ekki vegna náms í Bandaríkjunum