16 nóv. 2015Íslenska kvennalandsliðið hóf æfingar í morgun og verða við æfingar næstu daga, en liðið æfir aftur í kvöld og áfram tvisvar á dag fram að brottför á fimmtudaginn. Landsleikur Ungverjalands og Íslands fer svo fram á laugardaginn í Miskolc í Ungverjalandi. Ljóst er að tveir leikmenn verði ekki með að þessu sinni úr upprunalega æfingahópnum en það eru liðsfélagarnir þær Björg Guðrún Einarsdóttir og Petrúnella Skúladóttir, sem báðar eru meiddar.