9 nóv. 2015Framundan næsta sumar eru á dagskránni skemmtileg verkefni yngri landsliða Íslands í körfuknattleik og styttist í að undirbúningur hefjist formlega. Þjálfarar liðanna munu velja fyrstu æfingahópa sína í kringum mánaðarmótin nóvember/desember og boða leikmenn á æfingar fyrir og milli jóla og nýárs. Eftirtalin verkefni eru framundan á komandi ári: U15 drengir og stúlkur æfingamót í Kaupmannahöfn 16.-19. júní U16 drengir Norðurlandamót dags. síðar og Evrópukeppni 12.-20. ágúst U16 stúlkur Norðurlandamót dags. síðar og Evrópukeppni 6.-14. ágúst U18 drengir Norðurlandamót dags. síðar og Evrópukeppni 30. júlí-7. ágúst U18 stúlkur Norðurlandamót dags. síðar og Evrópukeppni 23.-31. júlí U20 drengir Norðurlandamót 26.-30. júní og Evrópukeppni 16.-24. júlí U20 stúlkur Norðurlandamót 26.-30. júní Ekki er hægt að gefa út dagsetningu á NM U16 og U18 þar sem töluverðar líkur eru á að mótið verði fært til Finnlands og ef það verður þar þá verður mótið í lok júní. Endanleg dagsetning kemur í ljós í síðasta lagi 30. nóvember.