28 okt. 2015Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir tvö mál í vikunni. Mál 1/2015-2016: "Með vísan til ákvæðis c. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Kristófer Ríkharðsson, leikmaður Patreks, sæta 1 leiks/leikja banni vegna háttsemi sinnar í leik Kormáks og Patreks í Meistaraflokki karla, sem leikinn var á Hvammstanga 18. október 2015". Mál 2/2015-2016: "Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Fannar Freyr Helgason, leikmaður ÍA, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Hamars og ÍA í 1. deild Meistararflokki karla, sem leikinn var 23. október 2015". Úrskurðirnir taka gildi á hádegi á fimmtudag.