26 okt. 2015Sigmundur Már Herbertsson FIBA dómari fékk á dögunum tilnefingu í alþjóðlegt verkefni í Frakklandi í lok október. Sigmundur dæmdi eins og frægt er á EuroBasket í sumar í riðlinum sem fram fór í Lettlandi og stóð sig vel. Sigmundur mun á miðvikudaginn kemur 28. október dæma leik Tango Bourges Basket og AGÜ Spor frá Tyrklandi í Meistaradeild kvenna (Euroleague Women) en leikurinn fer fram í Bourges í Frakklandi. Meðdómarar Sigmundar verða Gintaras Vitkauskas frá Litháen og Ernad Karovic frá Bosníu og Hersegóvínu. Eftirlitsmaður er Alison Muir frá Englandi. KKÍ óskar Sigmundi góðs gengis í verkefninu.