16 okt. 2015Í kvöld hefst 1. deild karla með heillri umferð eða fimm leijkum. Nýliðar Reynis frá Sandgerði eiga heimaleik gegn ÍA. KFÍ fær Þór frá Akureyri vestur í heimsókn og er leikurinn í beinni á netinu á Jakinn.tv. Þessir leikir hefjast kl. 19.15. Í Dalhúsum í Grafarvogi eigast við Fjölnir og Hamar og Valur tekur á móti Skallagrím á Hlíðarenda. Þessir leikir hefjast kl. 19.30 Hinir nýliðar deildarinnar Ármann taka á móti Breiðablik í Kennaraháskólanum kl. 20.00. Í 1. deild kvenna tekur Breiðablik á móti Skallagrím kl. 19.15 en einni umferð er lokið í deildinni í ár. Allir leikir kvöldsins verða í beinni tölfræðilýsingu á kki.is en í vetur verða allir leikir í báðum 1. deildum "LIVEstattaðir".