23 sep. 2015Háskólinn í Reykjavík, Körfuknattleikssamband Íslands og íþrótta- og Ólympíusamband Íslands bjóða uppá fyrirlestur fyrir íþróttamenn og íþróttalið með þjálfaranum Aysim Altay frá Tyrklandi. Aysim hefur sérhæft sig í þjálfun er varðar hugarástand íþróttamanna "mental coaching". Fyrirlesturinn verður í Háskólanum í Reykjavík í sal M101 laugardaginn 26.september kl. 16:00 til 17:15. Fyrirlestur Aysim Altay fjallar um hvernig megi meðhöndla einstaklinga sem hluta af liði og hvernig hægt sé að hámarka frammistöðu liðsins. Hvað þarf að vita um einstaklingin og „team chemistry“. Aysim Altay er einn af aðalfyrirlesurum í FECC þjálfaranámi evrópska körfuknattleikssambandsins-FIBA Europe. Einnig hefur Aysim Altay starfað með mörgum landsliðum og atvinnuliðum sem og tyrknesku samböndunum í körfuknattleik og knattspyrnu.