18 sep. 2015
Það verða Spánn og Litháen sem mætast í úrslitaleiknum um Evrópumeistaratitilinn 2015 á EuroBasket á sunnudaginn kemur. Spánn tryggði sér sæti í úrslitunum í gær með sigri á Frakklandi í framlengdum leik. Í kvöld var svo komið að viðureign Serbíu og Lithaéns sem endaði með þriggja stiga sigri Litháa 67:64. Það verða því Frakkland og Serbía sem leika um bronsið á undan úrslitaleiknum á sunnudag kl. 12:00 að íslenskum tíma og úrslitaleikurinn hefst svo kl. 17:00 og verða báðir leikir í beinni á RÚV og RÚV HD. Grikkland og Ítalía unnu sína leiki gegn Lettlandi og Tékklandi og tryggðu sér þar með sæti á móti þar sem lið frá öllum álfum leika um laus sæti á Ólympíuleikunum næstu. Tékklandi lagði svo í dag Letta í leik um síðasta sætið á mótinu og 7. sætinu á EM.