10 sep. 2015Ísland og Tyrkland mætast i kvöld í lokaleik sínum í B-riðli EuroBasket 2015 í Berlín. Leikurinn hefst kl. 19:00 að íslenskum tíma eða kl. 21:00 í Þýskalandi. Tyrkland hafa unnið tvo leiki af fjórum og eru í harðri baráttu um að komast áfram á meðan Ísland hefur tapað sínum fyrstu fjórum leikjum og á ekki möguleika lengur að fara áfram. Í kvöld verður ekkert gefið eftir og ætla okkar menn að taka með sér einn sigur heim úr riðlinum. Hér er smá myndband til að hita upp fyrir kvöldið: Leikurinn verður í beinni útsendingu á RÚV og RÚV HD og verður hitað upp fyrir leik í EM-stofu fyrir leikinn í dag. Lifandi tölfræði verður frá öllum leikjum keppninnar á vef FIBA Europe og vef keppninnar [v+]http://eurobasket2015.org [v-]eurobasket2015.org[slod-] og einnig allar upplýsingar um liðin og leikmenninna.
Dagskrá mótsins er eftirfarandi: íslenskir leiktímar (á staðartíma í sviga): 10.09.2015 - TYRKLAND Fimtudagur kl. 19.00 (21:00 í Þýskalandi)