9 sep. 2015
Lokaleikur B-riðilsins í Berlín í kvöld var leikur gegn firnasterku liði Spánar. Þetta var í fyrsta sinn sem þjóðirnar mætast í evrópukeppni. Leikar fóru 73:99 fyrir Spán en í viðtali eftir leik sagði Jón Arnór Stefánsson að honum fyndist tölurnar ekki gefa rétta mynd af leiknum og að honum hafi fundist íslenska liðið vera inni í leiknum langt fram í þriðja leikhluta. Íslenska liðið var yfir 36:33 þegar um ein og hálf mínúta var til hálfleiks en Spánn átti lokasprettinn og var með fimm stiga forskot í hálfleik 41:36. Í seinni hálfleik sýndi spænska liðið kraft sinn og skoraði grimmt inni í teig og fyrir utan þriggja stiga línuna og á endanum reyndist munurinn vera of mikill. Lokatölur leiksins [v+]http://www.eurobasket2015.org/en/compID_qMRZdYCZI6EoANOrUf9le2.season_2015.roundID_9322.gameID_9323-B-10-4.html[v-]73:99[slod-]
Á morgun fer fram lokaleikur íslenska liðsins á EuroBasket 2015 og verður það leikur gegn Tyrkjum á sama tíma og í dag (19:00 á Íslandi og 21:00 í Þýskalandi). Leikurinn á morgun verður í beinni útsendingu á RÚV og RÚV HD og verður hitað upp fyrir leik í EM-stofu fyrir leikinn eins og verið hefur alla keppnina. Dagskrá mótsins er eftirfarandi: íslenskir leiktímar (á staðartíma í sviga): 10.09.2015 - TYRKLAND Fimtudagur kl. 19.00 (21:00 í Þýskalandi)