6 sep. 2015
Ísland og Ítalía mættust í kvöld fyrsta sinn í Evrópukeppni A-landsliðs karla og í öðrum leikjum liðanna á EuroBasket 2015. Íslenska liðið lék frábærlega í dag og leikurinn hin mesta skemmtun fyrir þá fjölmörgu áhorfendur sem studdu liðið í kvöld á pöllunum. Ísland var fjórum stigum undir í hálfleik 37:41 og kom ákveðið til leiks í seinni hálfleik. Í lokaleikhlutanum náði liðið mest 6 stiga forskoti. Ítalía hafði mest náð 8 stiga forskoti í leiknum. Á lokamínútunum féll allt Ítalíu í vil og þeir náðu að skora 12 stig á móti tveimur íslenskum á síðustu þrem mínútum leiksins sem gerði útslagið. Lokatölur [v+]http://www.eurobasket2015.org/en/gameID_9323-B-4-2.html [v-]64:71[slod-] fyrir Ítalíu í leik sem hefði getað farið á hvorn veginn sem var. Íslensku strákarnir léku af krafti og sýndu hvers megnugir þeir eru gegn stórstjörnum liðsins á stórasviðinu á EM. Frábær leikur hjá liðinu sem er staðráðið í að nýta þennan góða leik sem hvatningu og mæta tilbúnir í næsta leik. Á morgun er frídagur hjá öllum liðunum og á þriðjudaginn eru það silfur lið Serbíu frá HM síðasta sumar sem mætir íslensku víkingunum. Leikurinn hefst kl. 12:30 að íslenskum tíma eða 14:30 í Þýskalandi að staðartíma. Allir leikir Íslands verða í beinni útsendingu á RÚV og RÚV HD og verður hitað upp fyrir leik í EM-stofu fyrir hvern leik. Lifandi tölfræði verður frá öllum leikjum keppninnar á vef FIBA Europe og vef keppninnar [v+]http://eurobasket2015.org [v-]eurobasket2015.org[slod-] og einnig allar upplýsingar um liðin og leikmenninna.
Dagskrá mótsins er eftirfarandi: íslenskir leiktímar (á staðartíma í sviga): 08.09.2015 - SERBÍA Þriðjudagur kl. 12:30 (14:30 í Þýskalandi) 09.09.2015 - SPÁNN Miðvikudagur kl. 19:00 (21:00 í Þýskalandi) 10.09.2015 - TYRKLAND Fimtudagur kl. 19.00 (21:00 í Þýskalandi)