6 sep. 2015
Í dag heldur veislan áfram! Fysta viðureign Íslands gegn Ítalíu í sögu þjóðanna í Evrópukeppni byrjar kl. 16:00 í dag í Mercedes Benz Arena í Berlín. Bæði lið töpuðu sínum fyrstu leikjum í gær, en Ítalí lék gegn Tyrkjum í gærkvöldi. Okkar drengir koma tilbúnir til leiks og munu fylgja eftir góðum leik í gær og gefa sig alla í leikinn eins og þeim er líkt. Íslendingar í Berlín ætla að hittast fyrir leik á Urban Spree líkt og í gær. Að gefnu tilefni eru áhorfendur hvattir til að mæta tímanlega til að komast hjá töfum við innganginn á leikstað.
Allir leikir Íslands verða í beinni útsendingu á RÚV og RÚV HD og verður hitað upp fyrir leik í EM-stofu fyrir hvern leik. Lifandi tölfræði verður frá öllum leikjum keppninnar á vef FIBA Europe og vef keppninnar [v+]http://eurobasket2015.org [v-]eurobasket2015.org[slod-] og einnig allar upplýsingar um liðin og leikmenninna.
Dagskrá mótsins er eftirfarandi: íslenskir leiktímar (á staðartíma í sviga): 06.09.2015 - ÍTALÍA Sunnudagur kl. 16:00 (18:00 í Þýskalandi) 08.09.2015 - SERBÍA Þriðjudagur kl. 12:30 (14:30 í Þýskalandi) 09.09.2015 - SPÁNN Miðvikudagur kl. 19:00 (21:00 í Þýskalandi) 10.09.2015 - TYRKLAND Fimtudagur kl. 19.00 (21:00 í Þýskalandi)