5 sep. 2015
Íslenska karlalandsliðið lék sinn fyrsta leik á EuroBasket 2015, Evrópumótinu í körfuknattleik fyrr í dag, gegn Þýskalandi og var þetta fyrsta viðureign þjóðanna í Evrópukeppni.
Eftir að lent undir 16 stigum kom íslenska liðið til baka með baráttu og samvinnu og náði að minnka muninn niður í sex stig í lokaleikhlutanum. Ísland fékk nokkur tækifæri á að minnka hann enn frekar en Þjóðverjar héldu út og lokatölur [v+]http://www.eurobasket2015.org/en/compID_qMRZdYCZI6EoANOrUf9le2.season_2015.roundID_9322.gameID_9323-B-1-1.html[v-]71:65[slod-] fyrir heimamenn. Frábær frammistaða okkar leikmanna í leiknum sem voru studdir af hátt í 1.000 íslensingum í Mercedes Benz Arena. Áhorfendur voru tæplega 13.000 á leiknum. Allir leikir Íslands verða í beinni útsendingu á RÚV og RÚV HD og verður hitað upp fyrir leik í EM-stofu fyrir hvern leik.
Lifandi tölfræði verður frá öllum leikjum keppninnar á vef FIBA Europe og vef keppninnar [v+]http://eurobasket2015.org [v-]eurobasket2015.org[slod-]. Dagskráin mótsins er eftirfarandi: íslenskir leiktímar og á staðartíma í sviga: 06.09.2015 - ÍTALÍA Sunnudagur kl. 16:00 (18:00 í Þýskaland) 08.09.2015 - SERBÍA Þriðjudagur kl. 12:30 (14:30 í Þýskaland) 09.09.2015 - SPÁNN Miðvikudagur kl. 19:00 (21:00 í Þýskaland) 10.09.2015 - TYRKLAND Fimtudagur kl. 19.00 (21:00 í Þýskaland)