3 sep. 2015
Í dag eru 2 dagar til leiks á EMí körfu, EuroBasket 2015, en fyrsti leikurinn verður gegn heimamönnum á laugardaginn kl. 13:00 að íslenskum tíma. Rétt í þessu var íslenska liðið að ljúka æfingu í keppnishöllinni sem er stórglæsileg og þar er allt klárt fyrir upphaf mótsins. Myndir og videó frá höllinni og æfingunni má sjá á [v+]https://www.facebook.com/kki.islands[v-]Facebook-síðu KKÍ[slod-] Í kvöld mun liðið koma saman og horfa á landsleik Hollands og Íslands og sendir hópurinn bestu kveðjur strákana í Amsterdam. Beinar útsendingar Allir leikir Íslands á EM í körfu verða í beinni útsendingu á RÚV og RÚV HD í keppninni og einnig verður einn annar leikur sýndur hvern keppnisdag á RÚV. Dagskráin er eftirfarandi fyrir EM: íslenskir leiktímar og á staðartíma í sviga: 05.09.2015 - Þýskaland Laugardagur kl. 13:00 (15:00 í Þýskalandi) 06.09.2015 - ÍTALÍA Sunnudagur kl. 16:00 (18:00 í Þýskaland) 08.09.2015 - SERBÍA Þriðjudagur kl. 12:30 (14:30 í Þýskaland) 09.09.2015 - SPÁNN Miðvikudagur kl. 19:00 (21:00 í Þýskaland) 10.09.2015 - TYRKLAND Fimtudagur kl. 19.00 (21:00 í Þýskaland)