31 ágú. 2015
Íslenska karlalandsliðið er komið á liðshótelið sitt í Berlín í Þýskalandi þar sem B-riðillinn í lokakeppni EM, EuroBasket 2015, fer fram 5.-11. september. Liðið ferðaðist í dag frá Póllandi og verður við æfingar næstu daga fram að móti. Hér fyrir ofan má sjá liðið við hið fræga kennileiti borgarinnar, Brandenborgarhliðið. EuroBasket 2015 appið fyrir snjallsíma: (iOS og Android) FIBA Europe hefur gefur út app fyrir mótið með lifandi tölfræði, dagskrá og fleiru. Hægt er að ná í það [v+]https://itunes.apple.com/si/app/eurobasket-2015-official/id1031379757?mt=8[v-]hérna fyrir iPhone/iPad [slod-] og [v+]https://play.google.com/store/apps/details?id=net.eb2015.app[v-]hérna fyrir Android tæki [slod-] . Dagskráin er eftirfarandi: íslenskir leiktímar og á staðartíma í sviga: 05.09.2015 - Þýskaland Laugardagur kl. 13:00 (15:00 í Þýskalandi) 06.09.2015 - ÍTALÍA Sunnudagur kl. 16:00 (18:00 í Þýskaland) 08.09.2015 - SERBÍA Þriðjudagur kl. 12:30 (14:30 í Þýskaland) 09.09.2015 - SPÁNN Miðvikudagur kl. 19:00 (21:00 í Þýskaland) 10.09.2015 - TYRKLAND Fimtudagur kl. 19.00 (21:00 í Þýskaland)
Liðið dvelur á liðshóteli keppninnar ásamt hinum liðunum í riðlinum. Allur íslenski hópurinn hefur komið sér vel fyrir og getur einbeitt sér að komandi verkefni sem framundan er.