28 ágú. 2015
Í dag er komið að fyrsta leiknum í Póllandi en það verður leikur gegn heimamönnum kl. 18:00 að íslenskum tíma í kvöld. Ákveðið hefur verið að Pavel hvíli í leiknum til að taka ekki neina áhættu en hann er að jafna sig af smá eymslum. Fyrir áhugsama verður hægt að fylgjast með leiknum í lifandi tölfræði á heimasíðu pólska sambandsins [v+]http://www.pzkosz.plt [v-]pzkosz.pl[slod-] en í hægra horninu birtist LIVEstatt gluggi fyrir leik og fyrir þá sem geta fundið Polsat Sport News-stöðina þá verður leikurinn í beinni þar en ekki er víst að hann sé sýndur á netinu af hálfu sjónvarpsstöðvarinnar. Áhugasamir geta þó reynt að finna hana á veraldarvefnum. Dagskráin er eftirfarandi (ísl. tími) 28. ágúst kl. 18.00 - Pólland-ÍSL 29. ágúst kl. 15.30 - ÍSL-Líbanon 30. ágúst kl. 13:30 - ÍSL-Belgía