23 ágú. 2015
Helgi Már og Jakob fyrir eftir landsleik Íslands og Hollands á móti í Eistlandi KKÍ og Félagsvörur ehf, umboðsaðili Muellersports og Vitargo á íslandi, hafa gert með sér samstarfssamning fyrir öll landslið sambandsins. Öll landslið KKÍ munu nota íþróttateip og aðrar sjúkravörur frá Muellersport. Þá munu A-landslið karla og kvenna nota orku- og fæðubótarefni frá Vitargo. Samningurinn er til eins árs. Aðildarfélögum KKÍ stendur og til boða að gera samning um hagstæð innkaup á sjúkravörum frá Muellersport. Muellersport er rótgróið amerískt fyrirtæki og hefur lengi verið leiðandi á sínu sviði. Þá eru margir heimsklassa íþróttamenn með samning við Mueller. Vitargo er sænskt fyrirtæki sem framleiðir hágæða orku- og fæðubótarefni. Fjölmargir afreksíþróttamenn á íslandi kjósa að nota Vitargo í hinum ýmsu íþróttagreinum. Félagsvörur ehf, umboðsaðil MuellersportsMedicine og Vitargo, er staðsett í Hafnarfirði. Fyrirtækið leggur mikla áherslu á að bjóða hágæða vörur á sanngjörnu verði. Helstu viðskiptavinir fyrirtækisins eru sjúkraþjálfarar og heilsustofnanir, íþróttafélög og einstakir afreksmenn. Hægt er að skoða allt vöruúrvalið á www.vitargo.is Allar nánari upplýsingar fást hjá Félagsvörum ehf, Reykjavíkurvegi 66, 2.h æð (Opið mán-fim kl. 16-18) og í síma 898-9075.