20 ágú. 2015Ísland og Eistland áttust við fyrr í dag Eistlandi á Toyota Four Nations Cup-mótinu sem fram fer í Tallinn. Heimamenn byrjuðu leikinn betur og hittu mjög vel úr opnum skotum sínum á meðan okkar menn hittu ekki eins vel úr sínum skotum. Jafnræði var með liðunum en munurinn var léleg vítanýting okkar manna og hökt í byrjun sem bjó til mun sem var í kringum 12 stig mestan hlutan leiksins. Munurinn komst niður í 8 stig á tímabili í 3. leikhluta en lokatölur urðu 85:65 fyrir Eistland. Stigahæstur í dag var Haukur Helgi Pálsson með 17 stig og 4 fráköst og Hlynur Bæringsson var með 14 stig og 7 fráköst. Margt jákvætt í leik okkar liðs á báðum endum vallarins og næsti leikur á morgun kl. 14:30. Þá verður mótherjinn Holland sem heimsóttu okkur íslending heim í byrjun mánaðarins, og léku við okkur tvo leiki þar sem bæði lið unnu einn leik. Lifandi tölfræði frá mótinu: http://www.basket.ee Dagskrá mótsins (leiktímar að íslenskum tíma): 20. ágúst - Ísland · Eistland kl. 17:00 21. ágúst - Ísland · Holland kl. 14:30 22. ágúst - Ísland · Filipseyjar kl. 14:30