20 ágú. 2015
Íslenska landsliðið er núna statt á í Eistlandi en liðið ferðaðist utan í gær miðvikudag. Í kvöld/dag er komið að fyrsta leiknum og er hann gegn heimamönnum kl. 20:00 eða kl. 17:00 að íslenskum tíma. Þjálfarar liðsins í samráði við lækna og sjúkraþjálfara og styrktarþjálfara hafa ákveðið að hvíla Jón Arnór Stefánsson í fyrsta leik v/ smávægilegra eymsla og ekki taka neina áhættu. Auk hans mun Sigurður Gunnar Þorsteinsson hvíla í fyrsta leik en 14 leikmenn eru með liðinu. Liðinu verður svo breytt fyrir næstu leiki. Á undan okkar leik mun Sigmundur Már Herbertsson dæma leik Hollands og Filipseyja sem hefst kl. 14:30 að íslenskum tíma í Saaku Surhallen þar sem mótið fer fram. Sigmundur er dómari á mótinu og undirbýr sig fyrir EuroBasket þar sem hann mun dæma í Lettlandi. Liðið gegn Eistlandi: 3 · Martin Hermannsson 4 · Axel Kárason 5 · Ragnar Ágúst Nathanaelsson 6 · Jakob Örn Sigurðarson 8 · Hlynur Bæringsson 10 · Helgi Már Magnússon 13 · Hörður Axel Vilhjálmsson 14 · Logi Gunnarsson 15 · Pavel Ermolinskij 24 · Haukur Helgi Pálsson 29 · Ægir Þór Steinarsson 88 · Brynjar Þór Björnsson Þjálfari: Craig Pedersen Aðstoðarþjálfari: Arnar Gudjonsson og Finnur Freyr Stefansson Sjúkraþjálfari: Bjartmar Birnir Styrktarþjálfari: Gunnar Einarsson Bein tölfræðilýsing og hugsanlega útsending: Hægt verður að fylgjast með lifandi tölfræði frá leiknum á: http://www.basket.ee Hugsanlega verður hægt að horfa á vefútsendingu frá eistneskri sjónvarpsstöð sem sýnir frá mótinu en ekki er víst að hún náist út fyrir landið: Hægt er að ath með eftirfarandi tengla: http://otse.err.ee/etv http://sport.delfi.ee/ Dagskrá mótsins (leiktímar að Eistneskum tíma): Eistland +3 tímum á undan 20. ágúst - Ísland · Eistland kl. 20:00 21. ágúst - Ísland · Holland kl. 17:30 22. ágúst - Ísland · Filipseyjar kl. 17:30