18 ágú. 2015Landslið karla undirbýr sig áfram fyrir EuroBasket 2015 og heldur í fyrramálið út til Eistlands þar sem liðið mun taka þátt í Toyota Four Nations Cup-mótinu í Tallinn dagana 20-22. ágúst. Leikið verður gegn Eistum, Hollandi og Filipseyjum, en þetta er í fyrsta sinn sem Ísland mætir Filipseyjum í landsleik í körfubolta. Dagskrá mótsins (leiktímar að Eistneskum tíma): 20. ágúst - Ísland · Eistland kl. 20:00 21. ágúst - Ísland · Holland kl. 17:30 22. ágúst - Ísland · Filipseyjar kl. 17:30 14 leikmenn fara á mótið af þeim 15 sem eru í æfingahópnum en Sigurður Þorvaldsson (Snæfelli) hvílir að þessu sinni en hann er ennþá í æfingahópnum og æfir áfram þegar liðið kemur heim frá mótinu. Æfingamót í Eistlandi # Nafn Staða F.ár Height Félagslið (Land) · Landsleikir 3 Martin Hermannsson Bakvörður 1994 193 cm LIU University (USA) · 24 4 Axel Kárason Framherji 1983 192 cm Svendborg Rabbits (DEN) · 38 5 Ragnar Ágúst Nathanaelsson Miðherji 1991 218 cm Þór Þórlakshofn (ISL)· 24 6 Jakob Örn Sigurðarson Bakvörður 1982 190 cm Boras Basket (SWE) · 72 7 Sigurður Gunnar Þorsteinsson Miðherji 1988 204 cm Solna Vikings (SWE) · 45 8 Hlynur Bæringsson Miðherji 1982 200 cm Sundsvall Dragons (SWE) · 84 9 Jón Arnór Stefánsson Skotbakvörður 1982 196 cm Unicaja Malaga (ESP) · 74 10 Helgi Már Magnússon Framherji 1982 197 cm KR (ISL) · 84 13 Hörður Axel Vilhjálmsson Bakvörður 1988 194 cm Mitteldeutscher BC (GER) · 37 14 Logi Gunnarsson Skotbakvörður 1981 192 cm Njarðvík (ISL) · 110 15 Pavel Ermolinskij Bakvörður 1987 202 cm KR (ISL) · 46 24 Haukur Helgi Pálsson Framherji 1992 198 cm LF Basket (SWE) · 31 29 Ægir Þór Steinarsson Bakvörður 1991 182 cm Sundsvall Dragons (SWE) · 21 88 Brynjar Þór Björnsson Skotbakvörður 1988 192 cm KR (ISL) · 41 landsleikir Þjálfari: Craig Pedersen Aðstoðarþjálfari: Arnar Gudjonsson og Finnur Freyr Stefansson Sjúkraþjálfari: Bjartmar Birnir Styrktarþjálfari: Gunnar Einarsson Einnig fara með liðinu í fararstjórn Páll Kolbeinsson, formaður Afreksnefndar, Eyjólfur Þór Guðlaugsson, gjaldkeri KKÍ og Kristinn Geir Pálsson, starfsmaður KKÍ og tengill við fjölmiðla. Hægt verður að hafa samband við undirritaðan v/ viðtala og mynda. Sigmundur Már Herbertsson dómari mun einnig fara með og dæma í mótinu. Hægt verður að fylgjast með LIVEstattinu á: http://www.basket.ee Eistnesk sjónvarpsstöð sýnir frá mótinu en ekki er víst að hún náist út fyrir landið: http://otse.err.ee/etv