9 ágú. 2015Íslensku strákarnir fögnuðu vel sínum fyrsta sigri á EM í Búlgaríu 59-74. Staðan í hálfleik var 23-40 Íslensku strákunum í vil. Nökkvi Már Nökkvason var á eldi í dag með 7/12 í þristum og í heildina 22 stig. Eftir góðan fund í morgun og æfingu voru drengirnir vel einbeittir í verkefni dagsins sem voru Makedónía, en þeir unnu Portúgali með 10 stiga mun í gær. Meiri kraftur var í öllum aðgerðum og tóku strákarnir frumkvæðið strax í upphafi. Gísli Hallsson fór mikinn í upphafi leiks og varði fjögur skot á skömmum tíma auk þess að raða niður stigum á töfluna. Staðan eftir fyrsta leikhluta 13-18 Íslend í vil. Gabríel og Nökkvi voru að hitta vel og allir sem komu á gólfið léku mjög vel. Frábær annar leikhluti skilaði liðinu mest 20 stiga forystu 20-40 en síðustu þrjú stig síðari hálfleiks voru Makedóníu og leiddu Íslensku strákarnir með 17 stiga mun 23-40. Í Hálfleik voru Gísli Hallsson með 13 stig og Gabríel Sindri Möller 12. Sigmar Jóhann, Hákon og Gísli voru komnir í villuvandræði í hálfleik. Þriðji leikhluti var rólegur í stigaskori framan af en Makedóníumenn sigruðu leikhlutann 17-13 og minnkuðu muninn í 40-53. Sigmar Jóhann og Gísli villuðu útaf í leikhlutanum en baráttan í seinni hálfleik harðnaði til muna. Strákarnir stóðust pressuna en hittni Nökkva Má Nökkvasonar hélt strákunum á floti, kappinn smellti niður sjö slíkum í tólf tilraunum, þar af fjórum í lokaleikhlutanum. Lokatölur 59-74. [v+]http://u16men.fibaeurope.com/enDivB/compID_YUjW-7-FJ,kK9s431Lyr41.season_2015.roundID_11556.gameID_11557-D-8-3.html[v-] Tölfræði leiksins[slod-] Næsti leikur er á morgun gegn fyrnasterku liði Eistlands, en þeir eru taplausir og hafa sigrað leiki sína með miklum mun í riðlinum. Leikurinn hefst klukkan 17:30 að íslenskum tíma og hægt er að fylgjast með honum á heimasíðu mótsins [v+]http://u16men.fibaeurope.com/enDivB/[v-] FIBA U16[slod-]