
8 ágú. 2015Íslenska karlalandsliðið vann Hollendinga í kvöld [v+]http://www.kki.is/widgets_game.asp?league_id=undefined&season_id=91503&game_id=3102533[v-]80-55[slod-] en leikið var í Iceland Glacial-höllinni í Þorlákshöfn. Íslenska liðið var betri aðilinn allan leikinn og unnu sannfærandi sigur. Haukur Helgi Pálsson var stigahæstur hjá Íslandi með 23 stig og einnig tók hann 9 fráköst. Næstur honum kom Jón Arnór Stefánsson með 15 stig. Liðin leika aftur n.k. sunnudag í Laugardalshöll og hefst leikurinn kl. 16.00. Leikurinn verður í beinni útsendingu á RÚV. Miðasala fer fram á [v+]https://tix.is/is/event/1289/island---holland/[v-]www.tix.is[slod-]. Miðaverð er 1.000 kr. fyrir 16 ára og yngri og 2.000 kr. fyrir fullorðna.


