
8 ágú. 2015Strákarnir í U16 mæta Makedoníu í dag klukkan 18:15 að staðartíma sem er 15:15 að íslenskum tíma. Makedonía sigruðu Portúgal í gær en okkar menn eru tilbúnir í slaginn í dag. Eftir tvo leiki eru strákarnir án sigurs en leiknir eru fimm leikir í riðlakeppninni, eftir það verða milliriðlar og svo leikið um sæti. Það er nóg eftir af mótinu og allir leikmenn staðráðnir í að gera betur en í gær og verða betri leikmenn heldur en í gær. Með viljann að vopni er allt hægt segir einhversstaðar og það ætla leikmenn U16 að gera í dag. Hægt er að fylgjast með leiknum á heimasíðu mótsins [v+]http://u16men.fibaeurope.com/enDivB/[v-] FIBA U16[slod-]


