7 ágú. 2015Strákarnir léku annan leikinn sinn á EM í Bulgaríu fyrr í dag en þeir máttu þola skell gegn Svíum sem léku við hvurn sinn fingur. Lokatölur 82-42 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 46-13. Nökkvi Már Nökkvason var stigahæstur í Íslenska liðinu með 13 stig þar af öll í síðari hálfleik. Leikurinn byrjaði rólega þar sem bæði lið áttu í vandræðum að skora, Gabríel Sindri opnaði stigaskorið en eftir það tóku Svíar yfirhöndina og komust í 13-4 þegar að um 19 sekúndur voru eftir af fyrsta leikhluta. Strákarnir kláruðu sóknina of snemma og Svíar náðu stemmnings þrist á lokasekúndu fyrsta leikhluta og staðan 16-4. Í öðrum leikhluta réðu Íslensku strákarnir ekkert við pressuvörn Svía og bulluðu útí eitt. Ingi Þór og Viðar voru búnir með leikhléin í fyrsta leikhluta og gátu því ekkert stöðvað áhlaup þeirra gulklæddu. Annar leikhluti endaði 30-9 fyrir Svía sem leiddu 46-13. Gísli Hallsson fékk högg á hnéið og lék ekkert í síðari hálfleik. Þjálfararnir létu vel í sér heyra í hálfleik og vakti það strákanna sem voru hálfsofandi í leik sínum í fyrri hálfleik. Leikmenn voru harðari í sínum átökum í seinni hálfleik og þeir náðu að losa betur um hvorn annan. Seinni hálfleikur tapaðist með 7 stigum 36-29 og var jákvætt að strákarnir hættu aldrei að reyna. Riðilinn er mjög sterkur sem Íslensku strákarnir eru í, en þrír hörkuleikir eru eftir í riðlinum. Á morgun leika strákarnir gegn Makedoníu sem leiða með níu stigum í hálfleik eftir að hafa lent sjö stigum undir í byrjun leiks. Það er enginn uppgjöf í hópnum og allir að drekka í sig reynslu. [v+]http://u16men.fibaeurope.com/enDivB/compID_YUjW-7-FJ,kK9s431Lyr41.season_2015.roundID_11556.gameID_11557-D-4-2.html[v-]Tölfræði leiksins[slod-]