6 ágú. 2015Stelpurnar í U18 spila gegn Kýpur, Írlandi og Armeníu um sæti 17-20 á EM. Fyrsti leikurinn var í gær og var það gegn Kýpur. Stelpurnar mættu ákveðnar til leiks og þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður var staðan orðin 12-2 fyrir Íslandi. Kýpur náði þó að laga stöðuna aðeins og eftir fyrsta leikhluta var staðan 15-6. Í öðrum leikhluta var staðan orðin 30-13 og eftir þann þriðja var staðan 49-22. Íslensku stelpurnar héldu fullum krafti út leikinn og sáu til þess að Kýpur skoraði ekki stig í fjórða leikhluta og endaði leikurinn 64-22. Eins og sjá má af tölunum var Ísland með mikla yfirburði í þessum leik. Íslensku stelpurnar mættu vel stemmdar og var mikil barátta í liðinu og skipti engu máli hver kom inn á. Stigahæst var Þóra Kristín Jónsdóttir með 13 stig, 5 fráköst og 5 stolna, Irena Jónsdóttir með 10 stig, Sylvía Hálfdánardóttir með 10 stig og 6 fráköst og Emelía Ósk Gunnarsdóttir með 9 stig, 7 fráköst, 4 stoðsendingar og 3 stolna. Því miður meiddist Dagný Lísa Davíðsdóttir þegar hún skall með höfuðið illa í gólfið en sem betur fer eru meiðslin ekki alvarleg en hún mun þurfa að taka því rólega næstu dagana. Næsti leikur liðsins er gegn Írlandi á föstudaginn kl.15:15 að íslenskum tíma. [v+]http://u18women.fibaeurope.com/enDivB/compID_uHP8sHguJSYAvKyuMkarZ1.season_2015.roundID_10458.gameID_11356-I-2-1.html [v-]Tölfræði leiksins[slod-].