5 ágú. 2015Allir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta KKÍ þurfa að nálgast miða sína fyrirfram fyrir landsleikina sem fara fram um helgina við Holland. 

Leikirnir við Holland verða föstudaginn 7. ágúst kl. 19.15 í Þorlákshöfn og sunnudaginn 9. ágúst kl. 16.00. Hægt er að nálgast miðana fyrir báða leikina á sama tíma.

Ekki verður hleypt inn á leikdegi gegn framvísun aðgönguskírteina/boðskorta, heldur verður aðeins tekið við fyrirfram prentuðum miðum fyrir viðburðinn.

Handhafar aðgönguskírteina/boðskorta geta sótt miða fyrir leikina í eigin persónufimmtdaginn 6. ágúst á skrifstofu KKÍ á milli kl. 12.00-15.00.

Handhafar korta sem búa utan höfuðborgarsvæðis:
Þeir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta sem búa utan höfuðborgarsvæðisins geta sent tölvupóst skrifstofu KKÍ á sama tíma (Á milli 12.00-15.00) til þess að láta taka frá fyrir sig miða á báða leikina sem síðan verður hægt að nálgast á leikstað. Tölvupóstinn skal senda á kki@kki.is.

Í reglugerð um aðgönguskírteini segir meðal annars:
„Þegar um bikarúrslit og landsleiki er að ræða getur KKÍ krafist þess að rétthafar skírteina sæki aðgöngumiða gegn framvísun skírteinis og gilda þá ekki aðgönguskírteinin sjálf. Slíkt fyrirkomulag skal auglýst á heimasíðu KKÍ sem og í tölvupósti til félaga KKÍ.“

Hægt er að nálgast reglugerðina í heild sinni á vef KKÍ.