3 ágú. 2015Í gær spiluðu stelpurnar í U18 gegn Grikklandi. Leikurinn var jafn og spennandi í fyrri hálfleik en í seinni hálfleik tóku Grikkirnir öll völd á vellinum. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 15-20 og í hálfleik 22-31. Ísland hefði þó auðveldlega getað verið yfir en því miður vildu góð skot ekki fara ofan í og of margir tapaðir boltar gerðu það að verkum að Grikkland leiddi með 9 stigum í hálfleik. Í seinni hálfleik mættu grísku stelpurnar af miklum krafti og á tímum of miklum krafti þar sem Þóra steinlá eftir olnbogaskot frá grískum leikmanni sem sveiflaði olnboganum ótt og títt í leiknum og eingöngu heppni að fleiri íslenskar stelpur lágu ekki eftir í gólfinu. Eftir þriðja leikhluta var staðan orðin 27-48 fyrir Grikklandi. Íslensku stelpurnar sýndu mikinn karakter í fjórða leikhluta og fóru að ýta meira frá sér og unnu þann leikhluta 16-15 og lokatölur voru því 43-63. Atkvæðamestar í liði Íslands voru Sylvía Hálfdánardóttir með 12 stig og 11 fráköst og Dagný Lísa Davíðsdóttir með 10 stig og 3 fráköst. Leiktíminn dreifðist vel milli leikmanna og fengu allar stelpurnar góða reynslu af því að spila á móti mjög líkamlega sterku liði. Er þetta sérstaklega mikilvægt þar sem 8 leikmenn í liðinu eru á yngra ári og því líklegt að einhverjar þeirra mæti aftur að ári í sömu keppni. Næsti leikur liðsins er í dag kl.15:00 að íslenskum tíma gegn Rúmeníu sem eru ósigraðar í riðlinum og vel studdar af áhorfendum enda fer keppnin fram á þeirra heimavelli. Við minnum á lifandi tölfræði á heimasíðu [v+]http://u18women.fibaeurope.com/enDivB/ [v-]Fiba Europe[slod-].