29 júl. 2015Búið er að minnka æfingahóp landsliðs karla en þrír leikmenn hafa lokið þátttöku sinni í bili og halda í sumarfrí. Þeir leikmenn sem um ræðir eru þeir Darri Hilmarsson, KR, Emil Barja, Haukum og Ólafur Ólafsson, Grindavík/St Clement, Frakklandi. Áður hafði Elvar Már Friðriksson dregið sig úr hópnum og einnig var staðfest endanlega í dag að Kristófer Acox mun ekki fá leyfi til að taka þátt að þessu sinni v/ skuldbindinga sinna við sinn háskóla í Bandaríkjunum. Æfingahópur karla í dag eftir fyrsta niðurskurð Axel Kárason – Svendborg Rabbits, Danmörk · Framherji · f. 1983 · 192 cm · 37 landsleikir Brynjar Þór Björnsson - KR · Bakvörður f. 1988 · 192 cm · 42 landsleikir Finnur Atli Magnússon - KR (á leið til Hauka) · Miðherji · f. 1985 · 208 cm · 19 landsleikir Haukur Helgi Pálsson – LF Basket, Svíþjóð· Framherji · f. 1992 · 198 cm · 29 landsleikir Helgi Már Magnússon – KR · Framherji · f. 1982 · 197 cm · 83 landsleikir Hlynur Bæringsson – Sundsvall Dragons, Svíþjóð · Miðherji · 1982 · 200 cm · 82 landsleikir Hörður Axel Vilhjálmsson – Mitteldeutscher BC, Þýskaland · Bakvörður · f. 1988 · 190 cm · 35 landsleikir Jakob Örn Sigurðarson - Boras Basket, Svíþjóð · Bakvörður f. 1982 · 190 cm · 70 landsleikir Jón Arnór Stefánsson - Unicaja Malaga, Spánn · Bakvörður · f. 1982 · 196 cm · 72 landsleikir Logi Gunnarsson – Njarðvík · Bakvörður f. 1981 · 192 cm · 108 landsleikir Martin Hermannsson – LIU University USA / KR · Bakvörður · f. 1994 · 190 cm · 22 landsleikir Pavel Ermolinskij – KR · Bakvörður · f. 1987 · 202 cm · 44 landsleikir Ragnar Ágúst Nathanaelsson – Sundsvall Dragons (á leið í Þór Þ.) · Miðherji · f. 1991 · 218 cm · 22 landsleikir Sigurður Ágúst Þorvaldsson - Snæfell · Framherji · f. 1980 · 202 cm · 56 landsleikir Sigurður Gunnar Þorsteinsson - Solna Vikings, Svíþjóð · Miðherji · f. 1988 · 204 cm · 44 landsleikir Ægir Þór Steinarsson - Sundsvall Dragons, Svíþjóð · Bakvörður · f. 1991 · 182 cm · 20 landsleikir