11 júl. 2015Í gær lauk boðsmótinu í Danmörku þar sem íslenska liðið lék þrjá leiki. Lokaleikurinn í gær var gegn Finnlandi en áður höfðu Ísland og Danmörk skipst á að vinna sitt hvorn leikinn. Eftir að íslenska liðið hafi leitt með rúmum tíu stigum í lok þriðja leikhluta jafnaðist leikurinn. Jafnt var þegar Finnar fengu innkast 2 sekúndum fyrir leikslok og náðu skoti sem rataði ofan í körfuna um leið og flautan gall og höfðu því tveggja stiga sigur 74:72. Helena Sverrisdóttir var með 29 stig og 9 fráköst og Sara Rún Hinriksdóttir var með 14 stig. Mótið var liður í undirbúningnum fyrir undankeppni EM í haust en íslenska liðið leikur hér heima í nóvember og í febrúar. Hægt er að sjá tölfræði leikjanna á síðunni [v+]http://www.basket.dk/3-Nations-Nordics [v-]http://www.basket.dk/3-Nations-Nordics[slod-].