6 júl. 2015Á morgun heldur A-landslið kvenna á æfingamót í Kaupmannahöfn sem haldið er á vegum danska körfuknattleikssambandsins og leikur tvo leiki gegn Danmörku og einn gegn Finnlandi. Þjálfarar liðsins hafa valið þá 12 leikmenn sem taka þátt í mótinu en þrjár breytingar eru á liðinu frá Smáþjóðaleikunum sem fram fóru hér landi fyrir mánuði síðan. Pálína Gunnlaugsdóttir tekur ekki þátt vegna anna í vinnu og Petrúnella Skúladóttir gaf ekki kost á sér að þessu sinni. Þá er Hildur Björg Kjartansdóttir erlendis og fær frí frá verkefninu. Inn koma leikmenn úr æfingahópnum, þær Björg Einarsdóttir, KR og Sandra Lind Þrastardóttir, Keflavík, sem báðar eru nýliðar og Jóhanna Björk Sveinsdóttir, Breiðablik, sem leikið hefur tvo landsleiki. Danska sambandið ætlar að vera með bæði lifandi tölfræði og beina útsendingu frá mótinu á netinu á síðunni [v+]http://www.basket.dk/3-Nations-Nordics [v-]www.basket.dk/3-Nations-Nordics[slod-] Liðið er skipað eftirtöldum leikmönnum: Auður Íris Ólafsdóttir – Haukar · Bakvörður f. 1992 · 174 cm · 3 landsleikir Bryndís Guðmundsdóttir – Keflavík · Framherji · f. 1988 · 178 cm · 32 landsleikir Björg Einarsdóttir – KR · Bakvörður · f. 1992 · 165 cm · Nýliði Guðbjörg Sverrisdóttir – Valur · Bakvörður · f. 1992 · 180 cm · 4 landsleikir Gunnhildur Gunnarsdóttir – Snæfell · Bakvörður · f. 1990 · 176 cm · 16 landsleikir Helena Sverrisdóttir – CCP Polkwise (á leið til Hauka) · Bakvörður · f. 1988 · 184 cm · 54 landsleikir Jóhanna Björk Sveinsdóttir – Breiðablik · Framherji · f. 1989 · 178 cm · 2 landsleikir Margrét Rósa Hálfdanardóttir – Canisius Collage USA / Haukar · Bakvörður · f. 1994 · 177 cm · 9 landsleikir Ragna Margrét Brynjarsdóttir – Valur · Miðherji · f. 1990 · 186 cm · 26 landsleikir Sandra Lind Þrastardóttir – Keflavík · Miðherji · f. 1996 · 182 cm · Nýliði Sara Rún Hinriksdóttir – Canisius Collage USA / Keflavík · Framherji · f. 1996 · 182 cm · 6 landsleikir Sigrún Sjöfn Ámundadóttir – Norrköping Dolphins, Svíþjóð · Framherji f. 1988 · 181 cm · 33 landsleikir Þjálfari: Ívar Ásgrímsson Aðstoðarþjálfarar: Margrét Sturlaugsdóttir og Bjarni Magnússon Sjúkraþjálfari liðsins er Særún Magnúsdóttir og styrktarþjálfari er Baldur Þór Ragnarsson. Fararstjóri og liðsstjóri er Guðbjörg Norðfjörð.