1 júl. 2015Mótanefnd KKÍ auglýsir eftir félögum til að taka að sér umsjón fjölliðamóta í Íslandsmóti 11 ára drengja og stúlkna. Samkvæmt greinu 37. og 43 í reglugerð um körfuknattleiksmót skal auglýsa mótshelgar og geta öll lið sótt um að halda slík mót. Keppt verður eftir nýju fyrirkomulagi í minnibolta 11 ára n.k. vetur hjá drengjum og stúlkum en hægt er að kynna sér fyrirkomulagið á vef KKÍ - http://www.kki.is/reglugerdir.asp?reglugerd=1 Félög greiða þátttökugjald fyrir hvert lið sem það sendir á hvert mót. Gjaldið rennur að öllu leyti til mótshaldara. Greiða þarf gjald fyrir hvert mót. Gjaldið verður 4.000 kr. veturinn 2015-16. Þau félög sem ætla að sækja um verða að gera það fyrir kl. 09.00 þriðjudaginn 7. júlí. Tvö félög geta sótt um að halda mót saman. Í umsókn þarf eftirfarandi að koma fram: - Hvaða mót á að sækja um - Fjöldi leikvalla - Gistimöguleikar aðkomuliða - Fjöldi klukkustunda sem er hægt að nota í íþróttahúsi Minnibolti 11 ára drengir – keppnishelgar 17.-18. október 21.-22. nóvember 20.-21. febrúar 19.-20. mars 7.-8. maí Minnibolti 11 ára stúlkur – keppnishelgar 10.-11. október 7.-8. nóvember 6.-7. febrúar 12.-13. ars 23.-24. apríl