26 jún. 2015Undanúrslit á EuroBasket kvenna fóru fram í kvöld og verða það Serbía og Frakkland sem mætast í úrslitaleiknum á sunnudag í Búdapest í Ungverjalandi. Serbar sigruðu Hvít-Rússa 74-72 í æsispennandi leik fyrr í dag og leika Serbarí því í fyrsta skipti til úrslita á EuroBasket. Ava Dabovic átti enn einn stórleikinn fyrir Serba og skoraði 21 stig en Yelena Leuchanka var stigahæst Hvít-Rússa með 22 stig. Í leik Frakka og Spánverja var jafnt allan fyrri hálfleik en Frakkar voru betri í þriðja leikhluta og unnu leikinn 63-58. Sandrine Gruda skoraði 16 stig fyrir Frakkana en stigahæst Spánverja var Alba Torrens með 13 stig. Frakkar eru því komnir í úrslitin annað mótið í röð en þeir urðu Evrópumeistarar 2001 og 2009. Á sunnudaginn mun stjórn FIBA Europe funda í Búdapest, þar sem mótið fer fram, og kjósa um hvar EuroBasket kvenna 2017 mun fara fram. Hannes S. Jónsson formaður KKÍ og stjórnarmaður í FIBA Europe mun að sjálfsögðu sitja fundinn og taka þátt í kjörinu. Sigursælasta þjóð EuroBasket kvenna eru Sovétríkin en þær unnu mótið í 21 af 23 fyrstu mótunum, síðast 1991 þegar lið þeirra var lagt niður og fyrrum Sovétþjóðir hófu að leika undir eigin merkjum. Frá 1991 hafa fyrrum Sovétþjóðir unnið í 5 af 11 skiptum. Nánari upplýsingar um EuroBasket kvenna 2015 má finna á heimasíðu mótsins