26 jún. 2015Mótanefnd auglýsir lausar helgar fyrir minniboltamót félaga 2015-16. Þau félög sem óska eftir því að halda mót verða að skila inn umsókn á kki@kki.is fyrir kl. 09.00 fimmtudaginn 2. júlí. Í umsókn þarf að koma fram nafn á móti, sú helgi sem óskað er eftir og fyrir hvaða aldurshóp og kyn viðkomandi mót er. Á síðasta Körfuknattleiksþingi var samþykkt reglugerð um minniboltamót félaga. Til þess að geta haldið mót þarf félag að uppfylla reglugerð þessa. Sjá grein nr. 45 í reglugerð um körfuknattleiksmót - [v+]http://www.kki.is/reglugerdir.asp?reglugerd=1[v-]sjá hér[slod-]. Ef fleiri en tvö félög óska eftir sömu helgi mun mótanefnd úthluta helginni. Ef félög óska eftir að halda mót aðrar helgar þá þarf að hafa samband sérstaklega og óska eftir þeim. Umsóknir þurfa að berast fyirr kl. 09.00 fimmtudaginn 2. júlí. Lausar helgar veturinn 2015-16: 19.-20. september 26.-27. september 3.-4. október 24.-25. október 31. október-1. nóvember 14.-15. nóvember 28.-29. nóvember 5.-6. desember 12.-13. desember 19.-20. desember 2.-3. janúar 9.-10. janúar 16.-17. janúar 23.-24. janúar 30.-31. janúar 27.-28. febrúar 4.-5. mars 12.-13. mars 19.-20. mars 2.-3. apríl 9.-10. apríl 16.-17. apríl 23.-24. apríl 30. apríl-1. maí 7.-8. maí