26 jún. 2015Í gær lauk 8-liða úrslitunum á EuroBasket kvenna 2015 með nokkrum hörkuleikjum þar sem úrslitin réðust í lok leikjanna. Frakkland vann Rússa 77:74 þar sem staðan var jöfn 71:71 þegar innan við mínúta var til leiksloka. Frakkland reyndist sterkara á lokasprettinum og tryggði sér sæti í undanúrslitunum þar sem þær mæta Spánverjum . Sandrine Gruda, ein af bestu leikmönnum Evrópu, fagnaði afmælisdegi sínum og skoraði 23 stig fyrir Frakka. Evrópumeistarar Spánar lögðu lið Svartfjallalands í spennuleik með einu stigi 75:74. Alba Torrens, núverandi besti leikmaður Evrópu, átti frábæran leik og varði lokaskot Svartfjallalands. Þær fengu opið færi í lok leiksins og náðu frákastinu en Alba náði að verja síðara skotið og þær spænsku fögnuðu sigri. Serbía lagði Tyrkland 75:63 og Hvíta Rússland lagði Litháen 68:66. Liðin sem mætast í undanúrslitum í kvöld: Serbía - Hvíta Rússland Frakkland - Spánn Árangur Serba er athyglisverður en liðið hefur aldrei unnnið til verðlauna á EuroBasket frá því þeir urðu sjálfstæð þjóð og var það síðast 1991 sem Júgóslavar unnu til verðlauna, töpuðu í úrslitaleik fyrir Sovétstúlkum. Hvít-Rússar hafa einu sinni unnið til verðlaun þegar þeir fengu brons á Ítalíu 2007. Leikur Spánverja og Frakka er endurtekning á úrslitaleik mótsins 2013 þar sem Spánverjar sigruðu með 1 stigi og unnu sinn annan Evrópumeistaratitil og jöfnuðu Frakka í fjölda titla. Sjá nánar á síðu mótsins: [v+]http://www.eurobasketwomen2015.com/en/default.asp[v-]www.eurobasketwomen2015.com[slod-].