26 jún. 2015Um síðustu helgi fór fram U15 ára mótið Copenhagen-Invitational þar sem Ísland sendi lið drengja og stúlkna til leiks. U15 ára landsliðin eru fyrstu stig afreksstigans og léku 24 leikmenn sína fyrstu landsleiki á mótinu.
U15 stúlkur Stelpurnar léku tvo leiki á föstudegi og laugardegi og einn á sunnudag. Fyrsti leikur þeirra gegn öðru af tveimur liðum Svíþjóðar. Stelpurnar okkarm mættu ákveðnar til leiks og unnu 38:53 sigur. Í seinni leik þeirra var komið að leik gegn Topsportschool VBL frá Belgíu og sá leikur tapaðist 44:63. Á laugardeginum mættu stelpurnar einu af tveimur liðum Danmerkur á mótinu og áttu þær slæman leik og Danir unnu 65:56. Eftir þennan leik var raðað upp í úrslit og lentu liðin aftur saman í seinni leik dagsins. Staðráðnar í að hefna fyrir tapið í fyrri leiknum komu okkar stelpur frábærlega til baka og unnu leikinn 68:53. Á sunnudaginn var leikið um sæti og var leikið um 5. sætið á mótinu gegn Finnum. Finnar reyndust sterkari og unnu 67:83 sigur. Úrslit: 1. Ísland - Svíþjóð gulir 53:38 2. Ísland - Topsportschool VBL (Belgíu) 44:63 3. Ísland - Danir hvítir 56:65 4. Ísland - Danir hvítir 68:53 5. Ísland - Finnland um 5. sæti 67:83 Stelpurnar lentu því í 6. sæti á mótinu.
U15 drengir Strákanir í U15 höfðu sömu dagskrá og stelpurnar, tvo leiki fyrstu tvo dagana og svo leiki um sæti á sunnudeginum. Fyrsti leikur þeirra var í járnum allan tímann og jafnt á öllum tölum. Íslensku strákarnir reyndust sterkari og unnu 67:65 sigur á Danmörku. Í seinni leik sínum laugardaginn léku þeir gegn Rúmeníu og unnu 89:72. Á sunnudag léku þeir gegn Eistlandi og sigruðu þann leik 82:70 og þar með komnir í góða stöðu á mótinu og komnir í undanúrslit. Þar léku þeir gegn Topsportschool VBL og í miklum baráttu leik unnu þeir 49:45 sigur. Úrslitaleikurinn á mótinu var gegn úrvali frá Berlín og reyndust þeir þýsku sterkari og unnu öruggan 59:83 sigur á okkar liði í úrslitunum. Úrslit: 1. Ísland - Danmörk 67:65 2. Ísland - Rúmenía 89:72 3. Ísland - Eistland 82:70 4. Ísland - Topsportsschool (Belgíu) 49:45 5. Ísland - Berlín úrslitaleikur 59:83 Strákarnir hlutu silfur og voru þeir Sigvaldi Eggertsson og Arnór Sveinsson valdir í úrvalslið mótsins hjá liðum U15 drengja. Ljóst er að bæði lið lærðu mikið og leikmenn fengu að kynnast því hvað það er að vera í landsliði en mótið ein einmitt til þess að undirbúa leikmenn fyrir NM U16 ára og komandi ár í afreksstarfinu.