21 jún. 2015Í dag sunnudag er komið að loka keppnisdegi á Copenhagen-Invitational mótinu í Kaupmannahöfn hjá U15-liðunum okkar og U20 í Kaupmannahöfn. U20 kvenna Stelpurnar léku í gær gegn Danmörku. Þær dönsku höfðu sigur 63:85. Í dag leika þær sinn síðasta leik á mótinu gegn Eistlandi kl. 12.00 að íslenskum tíma og verður bein útsendinga á síðunni hér að ofan og tölfræði hér á kki.is. Tölfræði mótsins má sjá hérna: [v+]http://www.basket.dk/NM-U20-Damer [v-]www.basket.dk/NM-U20-Damer[slod-]. U15 liðin Bæði lið léku tvo leiki í gær. Strákarnir unnu sína leiki og leika til úrslita í dag gegn Berlín kl. 13.00 að íslenskum tíma. Þeir lögðu lið Eistlands 82:79 og svo lið Topsportsschool frá Belgíu í hörkuleik 49:45. Stelpurnar okkar léku gegn liði Danmerkur tvívegis í gær, fyrst töpuðu þær naumlega en í seinni leiknum unnu þær leikinn. Þær munu leika gegn Finnlandi um 5. sætið á mótinu kl. 10.45 í dag. Nánari fréttir eru á [v+]https://www.facebook.com/CopenhagenInvitational[v-]facebook-síðu CPH-Invitational-mótsins[slod-] þar verða færðar inn fréttir af leikjunum jafnóðum.