18 jún. 2015Í dag, föstudag, er komið að upphafi Copenhagen-Invitational hjá U15 liðunum okkar og einnig NM U20 kvenna. Bæði mótin fara fram í Danmörku. U15 mótið er í Farum og U20 mótið á Amager í Kaupmannahöfn. Bæði lið héldu út í dag og gekk ferðalagið vel og hafa öll lið tekið æfingu og komið sér fyrir. Leikjadagskráin er þannig að U15 hefja leik kl. 07.00 að íslenskum tíma gegn Dönum og stelpurnar spila gegn Svíþjóð gulum kl. 10.45. Á [v+]https://www.facebook.com/CopenhagenInvitational[v-]facebook-síðu CPH-Invitational-mótsins[slod-] verða færðar inn fréttir af leikjunum. Hjá stelpunum í U20 hefjast leikar kl. 15.00 að íslenskum tíma og á [v+]http://www.basket.dk/NM-U20-Damer[v-]www.basket.dk/NM-U20-Damer[slod-] er hægt að fylgjast með útsendingu frá leiknum á síðunni og LIVEstatti einnig, sem verður aðgengilegt á kki.is á sínum stað.