5 jún. 2015Logi Gunnarsson er í leikmannahópi íslenska karlalandsliðsins á Smáþjóðaleikunum sem nú standa yfir en hann er leikreyndasti leikmaður íslenska liðsins og búinn að leika 107 landsleiki þegar einn leikur er eftir á mótinu. Íslenska liðið leikur úrslitaleik gegn Svartfjallalandi á morgun laugardag kl. 16.00 um gullið á leikunum. Frítt er inn á alla viðburði Smáþjóðaleikana og því áhorfendur hvattir til að mæta og styðja við bakið á landsliðunum okkar. Logi er að fara að taka þátt í sínum fimmtu Smáþjóðaleikum og fær um leið inngögngu í fámennan hóp. Sex aðrir leikmenn hafa náð því að spila á fimm Smáþjóðaleikum. Logi er orðinn 33 ára gamall en hann átti flott tímabil með Njarðvíkingum og var frábær í úrslitakeppninni þar sem að hann skoraði . Logi var valinn í fimm manna úrvalslið tímabilsins. Logi hefur skorað 278 stig í 20 leikjum á Smáþjóðaleikum sem gera 13,9 stig að meðaltali í leik. Hann var fyrst með á Smáþjóðaleikunum í San Marínó árið 2001 og hefur verið með á öllum Smáþjóðaleikum nema tveimur síðan þá.  Logi var ekki með síðast þegar leikarnir fóru fram í Lúxemborg árið 2013 og hann var heldur ekki með á Smáþjóðaleikunum í Andorra fyrir tíu árum síðan. Logi Gunnarsson nær ekki leikjameti Guðmundar Bragasonar á þessum Smáþjóðaleikum en kemst í 2. sætið. Guðmundur spilaði á sínum tíma 28 leiki á sjö Smáþjóðaleikum en Guðmundur var með á sjö af átta fyrstu Smáþjóðaleikum íslenska karlalandsliðsins. Magnús Þór Gunnarsson er í öðru sætinu með þremur leikjum meira en Logi sem ætti því að ná að jafna hann með því að spila alla þrjá leiki Íslands á Smáþjóðaleikunum. Flestir Smáþjóðaleikar hjá íslenskum leikmönnum: 7 - Guðmundur Bragason 5 - Guðjón Skúlason 5 - Jón Kr. Gíslason 5 - Teitur Örlygsson 5 - Valur Ingimundarson 5 - Magnús Þór Gunnarsson 5 - Logi Gunnarsson 4 - Falur Harðarson 4 - Herbert Arnarson 4 - Fannar Ólafsson 4 - Páll Axel Vilbergsson 4 - Helgi Már Magnússon Flestir landsleikir karla á Smáþjóðaleikum: Guðmundur Bragason    28 Magnús Þór Gunnarsson    23 Logi Gunnarsson    20 Teitur Örlygsson    20 Guðjón Skúlason    20 Valur Ingimundarson    19 Páll Axel Vilbergsson    19 Jón Kr. Gíslason    19 Fannar Ólafsson    19 Herbert Arnarson    18 Friðrik Stefánsson    15 Jón Norðdal Hafsteinsson    15 Smáþjóðaleikar Guðmundar Bragasonar: 1987 í Mónakó - 3 leikir, 19 stig 1989 á Kýpur - 3 leikir, 31 stig 1991 í Andorra - 4 leikir, 65 stig 1993 á Möltu - 5 leikir, 97 stig 1995 í Lúxemborg  - 4 leikir, 80 stig 1997 á Íslandi - 4 leikir, 34 stig 2003 á Möltu -     5 leikir, 37 stig Samtals - 28 leikir, 363 stig Smáþjóðaleikar Loga Gunnarssonar: 2001 í San Marínó - 5 leikir, 95 stig 2003 á Möltu - 5 leikir, 58 stig 2007 í Mónakó - 5 leikir, 75 stig 2009 á Kýpur - 5 leikir, 50 stig Samtals - 20 leikir, 278 stig