5 jún. 2015Á morgun leika stelpurnar okkar lokaleik sinn á Smáþjóðaleikunum gegn Lúxemborg og verður hann á morgun laugardag 6. júní klukkan 13.30. Frítt er inn á alla leiki leikanna og áhorfendur því hvattir til að mæta og styðja við bakið á íslensku keppendunum okkar. Systurnar Sverrisdóttir og Guðbjörg Sverrisdætur eru í hópi íslenska kvennalandsliðsins á Smáþjóðaleikunum sem fara að þessu sinni fram á Íslandi. Helena Sverrisdóttir er fyrirliði liðsins og hefur verið fastamaður í íslenska landsliðinu í meira en tíu ár en yngri systir hennar á aðeins að baki einn landsleik. Guðbjörg Sverrisdóttir, sem er fjórum árum yngri en Helena, spilaði sinn fyrsta og eina landsleik í fyrrasumar en hún var þá þrettándi maður fyrir Evrópukeppni Smáþjóða í Austurríki. Leikirnir á Smáþjóðaleikunum í Laugardalshöllinni verða því fyrstu keppnisleikir þeirra systra saman en þær hafa spilað einn landsleik saman. Guðbjörg, sem hefur spilað 50 landsleikjum færra en stóra systir, spilaði sinn eina landsleik á móti Dönum í Stykkishólmi í fyrrasumar. Systurnar voru þá með 35 stig í naumu tapi eftir framlengingu. Helena var reyndar með 30 af þessum 35 stigum auk þess að taka 9 fráköst, gefa 6 stoðsendingar og stela 5 boltum. Guðbjörg skoraði 5 stig á 8 mínútum og hitti úr báðum skotum sínum.    Þær Helena og Guðbjörg verða þó ekki fyrstu systurnar til að spila saman í körfuboltalandsliðinu á Smáþjóðaleikum. Það kom í hlut þeirra Sigrúnar Sjafnar og Guðrúnar Óskar Ámundadætra frá Borgarnesi á Smáþjóðaleikunum á Kýpur árið 2009. Guðrún Ósk náði ekki að skora í leikjunum þremur og því geta þær Helena og Guðbjörg orðið fyrstu systurnar sem skora báðar í leik með íslenska kvennalandsliðinu á Smáþjóðaleikum. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir er í íslenska landsliðshópnum á Smáþjóðaleikunum í ár en Guðrún Ósk hefur ekki spilað með landsliðinu frá árinu 2009.