4 jún. 2015Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta er að taka þátt í tímamótaleikum á Smáþjóðaleikunum í ár en þeir fara fram þessa dagana í Laugardalshöllinni. Áhorfendur eru hvattir til að mæta og styðja við bakið á liðinu en frítt er á alla viðburði leikanna. Þetta verður í tíunda sinn sem íslenska kvennalandsliðið tekur þátt í körfuboltakeppni Smáþjóðaleikanna en íslenska liðið var fyrst með á Kýpur árið 1989. Það var ekki keppt í körfubolta kvenna fyrir árið 1989 og körfuboltakeppni kvenna féll einnig niður árin 1999, 2001, 2007 og 2011 en gestgjafi hverra leika á möguleika á því að taka út ákveðinn fjölda greina. Það var ekki keppt í kvennakörfubolta í Liechtenstein 1999, á San Marínó 2001, í Mónakó 2007 og í Liechtenstein 2011. Íslenska kvennalandsliðið hefur unnið verðlaun á öllum níu Smáþjóðaleikunum, eitt gull, sex silfur og tvö brons. Eina gullið kom á Smáþjóðaleikunum á Íslandi 1997. Íslensku stelpurnar hafa alls spilað 27 leiki á Smáþjóðaleikunum og unnið 17 þeirra eða 63 prósent leikja sinna. Liðið mun því spila þrítugasta leikinn sinn á þessum Smáþjóðaleikum. Það var Kristín Sigurðardóttir sem skoraði fyrstu körfu íslenska kvennalandsliðsins á Smáþjóðaleikum í tapleik á móti Lúxemborg 17. maí 1989. Kristín, sem lék þarna með ÍS, var líka stigahæst í fyrsta leik íslenska kvennalandsliðsins á Smáþjóðaleikum. Fyrstu þriggja stiga körfu íslenska kvennalandsliðsins á Smáþjóðaleikum skoraði aftur á móti Margrét Sturlaugsdóttir, þáverandi leikmaðru Keflavíkur og núverandi aðstoðarþjálfari íslenska kvennalandsliðsins. Margrét skoraði þá sögulegu þriggja stiga körfu í sigri á Mónakó í þriðja leik íslenska liðsins á Smáþjóðaleikunum á Kýpur 1989. Hún skoraði tvær þriggja stiga körfur í leiknum sem voru jafnframt þær einu hjá íslenska liðinu á þeim leikum. Íslenska kvennalandsliðið á Smáþjóðaleikum: 1989 á Kýpur - silfurverðlaun (Lúxemborg vann gull) 1991 í Andorra - bronsverðlaun (Lúxemborg vann gull) 1993 á Möltu - silfurverðlaun (Lúxemborg vann gull) 1995 í Lúxemborg - silfurverðlaun (Lúxemborg vann gull) 1997 á Íslandi - gullverðlaun 2003 á Möltu - bronsverðlaun (Malta vann gull) 2005 í Andorra - silfurverðlaun (Lúxemborg vann gull) 2009 á Kýpur - silfurverðlaun (Malta vann gull) 2013 í Lúxemborg - silfurverðlaun (Lúxemborg vann gull) 2015 á Íslandi - ??? Samantekt: Gull - 1 - (1997) Silfur - 6 - (1989, 1993, 1995, 2005, 2009, 2013) Brons - 2 - (1991, 2003) Flest gullverðlaun: 6 - Lúxemborg (1989, 1991, 1993, 1995, 2005, 2013) 2 - Malta (2003, 2009) 1 - Ísland (1997) Stelpunar spila við Mónakó í dag fimmtudaginn 4. júní klukkan 17.00 og svo lokaleikinn sinn á móti Lúxemborg á laugardeginum 6. júní klukkan 13.30.