4 jún. 2015
KKÍ og Errea hafa gert með sér samning sem nær yfir öll landslið KKÍ og munu því A-lið karla og kvenna, U20 ára lið og yngri landslið U18, U16 og U15 spila í Errea búningum og klæðast Errea fatnaði í kringum leiki og mót landsliðanna. Af þessu tilefni verður nýja landslidstreyjan til sölu í Laugardalshöllinni yfir Smáþjóðaleikanna á sérstöku kynningarverði sem er 9.900 krónur. Stærsta landsliðsár KKÍ til þessa er komið af stað og því afar mikilvægt að hafa öfluga aðila eins og Errea með okkur í liði og sérlega ánægjulegt að samningurinn er til þriggja ára. Hannes S. Jónsson formaður KKÍ og Þorvaldur Ólafsson framkvæmdastjóri Safalans, umboðsaðila Errea á Íslandi, skrifuðu undir samninginn á blaðamannafundi í Laugardalshöllinni í gær.