3 jún. 2015
Jakob Örn Sigurðarson er í landsliðshópnum á Smáþjóðaleikunum sem verða hér á Íslandi og fara fram í næstu viku. Jakob kemur nú aftur inn í landsliðið og mun á leikunum spila sína fyrstu landsleiki frá árinu 2013. Jakob er einnig að fara að spila á sínum fyrstu Smáþjóðaleikum á ferlinum og er hann aðeins annar tveggja leikmanna Íslands á leikunum sem hefur ekki spilað á þeim áður. Hinn leikmaðurinn er Kristófer Acox sem er að fara að spila sína fyrstu A-landsleiki í Laugardalshöllinni núna í kvöld. Jakob Örn Sigurðarson spilaði sinn fyrsta A-landsleik í ágúst árið 2000 og íslenska landsliðið hefur spilað á sex Smáþjóðaleikum síðan þá. Jakob hefur hinsvegar aldrei verið með fyrr en nú. 70. A-landsleikur Jakobs Arnar Sigurðarsonar verður því jafnframt fyrsti landsleikurinn hans á Smáþjóðaleikum. Sá kemst næstur í langri bið eftir leik á Smáþjóðaleikum í íslenska hópnum á þessum Smáþjóðaleikum er Sigurður Ágúst Þorvaldsson sem var búinn að spila 20 landsleiki þegar hann lék sinn fyrsta leik á Smáþjóðaleikum í Andorra 2005. Fjórir úr leikmannahópnum voru í sömu stöðu og Kristófer það er léku sinn fyrsta A-landsleik á Smáþjóðaleikum en það eru þeir Brynjar Þór Björnsson, Elvar Már Friðriksson, Martin Hermannsson og Ragnar Ágúst Nathanaelsson. Fjórir leikmenn íslenska liðsins á þessum Smáþjóðaleikum hafa verið með á tveimur eða fleiri leikum en Logi Gunnarsson hefur verið með á þeim flestum eða fjórum. Helgi Már Magnússon tekur nú þátt í sínum fjórðu Smáþjóðaleikum og þeir Brynjar Þór Björnsson og Sigurður Ágúst Þorvaldssoneru með í þriðja sinn.   Smáþjóðaleikareynsla íslenska hópsins 2015: Logi Gunnarsson - 4 (2001, 2003, 2007, 2009) Helgi Már Magnússon - 3 (2003, 2005, 2007) Brynjar Þór Björnsson - 2 (2007, 2013) Sigurður Ágúst Þorvaldsson - 2 (2005, 2009) Hlynur Bæringsson - 1 (2005) Axel Kárason - 1 (2013) Ægir Þór Steinarsson - 1 (2013) Elvar Már Friðriksson - 1 (2013) Martin Hermannsson - 1 (2013) Ragnar Ágúst Nathanaelsson - 1 (2013) Jakob Örn Sigurðarson - Nýliði á Smáþjóðaleikum Kristófer Acox - Nýliði á Smáþjóðaleikum Landsleikir leikmanna íslenska hópsins fyrir fyrsta leik á Smáþjóðaleikum: Jakob Örn Sigurðarson - 69 Sigurður Ágúst Þorvaldsson - 20 Hlynur Bæringsson - 15 Axel Kárason - 15 Ægir Þór Steinarsson - 13 Logi Gunnarsson - 9 Helgi Már Magnússon - 6 Brynjar Þór Björnsson - fyrsti landsleikurinn var á Smáþjóðaleikum Elvar Már Friðriksson - fyrsti landsleikurinn var á Smáþjóðaleikum Martin Hermannsson - fyrsti landsleikurinn var á Smáþjóðaleikum Ragnar Ágúst Nathanaelsson - fyrsti landsleikurinn var á Smáþjóðaleikum Kristófer Acox - fyrsti landsleikurinn verður á Smáþjóðaleikum Fyrsti leikur íslensku strákanna á Smáþjóðaleikunum 2015 er í kvöld á móti Andorra í Laugardalshöllinni og hefst hann klukkan 19.30. Liðið spilar síðan við Lúxemborg á fimmtudeginum 4. júní (klukkan 19.30) og svo lokaleikinn sinn á móti Svartfjallalandi á laugardeginum 6. júní (klukkan 16.00). Frítt er á alla leiki keppninnar sem fram fer í Laugardalshöllinni.