31 maí 2015Á morgun verða Smáþjóðaleikarnir settir formlega en þeir fara fram hér á landi 1.-6. júní og eru þetta 16. leikarnir sem haldnir eru. Það eru liðin átta ár síðan að íslenska karlalandsliðið vann gullverðlaun á Smáþjóðaleikunum en strákarnir okkar fengu síðast gull um hálsinn eftir körfuboltakeppnina á leikunum í Mónakó. Íslenska liðið fékk gullið sitt þó ekki afhent strax eftir úrslitaleikinn í Mónakó í júní 2007 eins og venjan er því leikurinn leystist upp í lokin og var á endanum flautaður af eftir að Kýpverjar misstu stjórn á skapi sínu og slagsmál brutust út.  Íslandi var dæmdur sigur í leiknum og vann íslenska liðið því alla fimm leiki sína á leikunun. Kýpur var fyrir þessa leika búið að vinna fimm Smáþjóðaleika í röð og íslenska liðið hafði endaði í öðru sætinu á þremur þeirra. Íslenska liðið vann þarna fyrstu gullverðlaun sína í 24 ár eða síðan liðið vann gullið á Smáþjóðaleikunum á Möltu 1993. Þrír leikmenn íslenska liðsins á Smáþjóðaleikunum í ár voru með þegar gullið vannst fyrir átta árum en það eru þeir Logi Gunnarsson, Helgi Már Magnússon og Brynjar Þór Björnsson. Hörður Axel Vilhjálmsson var líka í þessu liði og hann er enn að spila með landsliðinu en getur ekki verið með í Höllinni vegna meiðsla. Logi var þriðji stigahæsti leikmaður íslenska liðsins fyrir átta árum á eftir þeim Brenton Birmingham og Páli Axel Vilbergssyni en Logi skoraði þá 15,0 stig að meðaltali í leik. Logi hitti meðal annars úr 21 af 23 vítum sínum sem gerir 91,3 prósent vítanýtingu. Logi og Helgi Már Magnússon fengu skráðar á sig flestar stoðsendingar á mótinu, sjö hvor, og Helgi Már Magnússon varð annar í fráköstum á eftir Friðriki Stefánssyni en Helgi Már tók samtals 24 fráköst eða 4,8 í leik. Stig íslenska liðsins á Smáþjóðaleikunum í Mónakó 2007: Brenton Birmingham · 87 Páll Axel Vilbergsson · 80 Logi Gunnarsson  · 75 Helgi Már Magnússon · 49 Friðrik Stefánsson · 38 Magnús Þór Gunnarsson · 26 Hreggviður Magnússon  · 25 Brynjar Þór Björnsson · 23 Þorleifur Ólafsson · 12 Kristinn Jónasson · 11 Hörður Axel Vilhjálmsson · 6 Jóhann Árni Ólafsson · 4 Fyrsti leikur íslensku strákanna á Smáþjóðaleikunum 2015 er miðvikudaginn 3. júní á móti Andorra í Laugardalshöllinni og hefst hann klukkan 19.30. Liðið spilar síðan við Lúxemborg á fimmtudeginum 4. júní (klukkan 19.30) og svo lokaleikinn sinn á móti Svartfjallalandi á laugardeginum 6. júní (klukkan 16.00).