21 maí 2015Fyrsti stjórnarfundur nýrrar stjórnar KKÍ fór fram í gærkvöldi. Fyrsta verk stjórnar var að skipta með sér verkum og að tillögu formanns Hannesar S. Jónssonar samþykkti stjórnin eftirfarandi: Guðbjörg Norðfjörð verður varaformaður, Eyjólfur Þór Guðlaugsson verður gjaldkeri og Rúnar Birgir Gíslason verður ritari. Stjórnin skipaði formenn fastanefnda. En nefndarskipan verður kláruð á næsta stjórnarfundi. Formenn nefnd verða: Mótanefnd: Lárus Blöndal Dómaranefnd: Rúnar Birgir Gíslason Fræðslunefnd: Guðbjörg Norðfjörð Afreksnefnd: Páll Kolbeinsson Á síðasta körfuknattleiksþingi var kosið í aga- og úrskurðarnefnd og áfrýjunardómstól samkvæmt lögum. Nokkrum málum var vísað til stjórnar frá síðasta Körfuknattleiksþingi. M.a. þess sem stjórnin tók ákvörðun um var að í 1. deild karla verði úrslitakeppnin stækkuð. Nú mun þurfa að vinna þrjá leiki í undanúrslitum sem og úrslitum um laust sæti í efstu deild. Áfram verða tvær umferðir í deildakeppninni. Í fyrirtækjabikar KKÍ verður öllum úrvals- og 1. deildarliðum boðin þátttaka. Leikjafyrirkomulag verður ákveðið þegar í ljós kemur hvernig þátttakan verður. Í meistaraflokkum kvenna er það stefna stjórnarinnar að hafa tvær deildir s.s. úrvalsdeild og 1. deild. Allar ákvarðanir um fjölgun í úrvalsdeild kvenna verður teknar þegar skráningu lýkur en henni lýkur þann 1. júní. Öðrum málum er var vísað til stjórnar af körfuknattleiksþingi var vísað til næsta stjórnarfundar.
Stjórn KKÍ skiptir með sér verkum