12 maí 2015Nú eru íslensku landsliðin lögð af stað til Solna þar sem NM 2015 hefst á morgun hjá U16 og U18 ára liðunum. Um 70 manns fara frá KKÍ þegar allt er talið til til að keppa og vera í kringum liðin og líkt og undanfarin ár er útlit fyrir spennandi og skemmtilegt norðurlandamót. Hægt verður að fylgjast með beinni tölfræðilýsingu frá öllum leikjum hér á kki.is og fréttaflutningi frá leikjum og myndum á karfan.is. Leikið er með sama fyrirkomulagi og í fyrra þegar Eistland bættist við mótið og leika öll lið fimm leiki og mun það lið sem best stendur að vígi að því loknum verða Norðurlandameistarar í hverjum flokki fyrir sig. Áfram verður þemadagur hvern dag þar sem öll liðin okkar leika gegn sömu þjóð og verður röðin Eistland, Noregur, Finnland, Svíþjóð og Danmörk. Dagskrá mótsins 2015 Allir tímar eru að sænskum tíma sem er +2 tímum á undan Íslandi. MU er Mens og WU Womens. 13. maí · Miðvikudagur WU18 · 17:00 · Iceland - Estonia WU16 · 17:00 · Iceland - Estonia MU16 · 19:00 · Iceland - Estonia MU18 · 19:00 · Iceland - Estonia 14. maí · Fimmtudagur MU16 · 11:00 · Norway - Iceland WU16 · 11:00 · Norway - Iceland MU18 · 17:00 · Norway - Iceland WU18 · 21:00 · Norway - Iceland 15. maí · Föstudagur MU18 · 15:00 · Finland - Iceland MU16 · 15:00 · Finland - Iceland WU16 · 17:00 · Finland - Iceland WU18 · 19:00 · Finland - Iceland 16. maí · Laugardagur MU16 · 13:00 · Iceland - Sweden WU18 · 17:00 · Iceland - Sweden MU18 · 19:00 · Iceland - Sweden WU16 · 19:00 · Iceland - Sweden 17. maí · Sunnudagur MU16 · 13:45 · Denmark - Iceland WU18 · 14:30 · Denmark - Iceland WU16 · 15:00 · Denmark - Iceland MU18 · 16:15 · Denmark - Iceland Hægt er að skoða [v+]http://www.kki.is/frettir.asp?adgerd=ein&id=15858 [v-]hérna[slod-] hvaða leikmenn skipa yngri landsliðin á mótinu og hverjir eru þjálfarar.