9 maí 2015
Viðburðarríku Körfuknattleiksþingi lauk í dag. Þingið hófst í gær með nefndarstörfum og lauk í dag með atkvæðagreiðslu. Hannes S. Jónsson var endurkjörinn formaður KKÍ til næstu tveggja ára en hann var sjálfkjörinn. Allir sitjandi stjórnarmenn KKÍ gáfu kost á sér og þar sem engin fleiri framboð komu var sjálfkjörið í stjórnina. Breytingar á lögum KKÍ voru samþykktar og hér eftir verða níu meðstjórnenda auk formanns í stað sex aðalmanna og þriggja varamanna ásamt formanni. Mörg mikilvæg málefni voru rædd á þinginu og m.a. þess sem var samþykkt var ný reglugerð um minnibolta félagana sem og ný reglugerð um Íslandsmót 11 ára eða minnibolta 11 ára. Einnig var samþykkt þingsályktunartillaga þess efnis að stækka eigi deildarkeppni meistaraflokka karla. Samkvæmt henni á að bæta við 3. deild karla. Miklar umræður voru um fyrirkomulag fjölda erlendra leikmanna í efstu deildum karla og kvenna og voru nokkrar tillögur þess efnis. Niðurstaða þingsins var að hafa óbreytt fyrirkomulag og verður því 4+1 við lýði næstu tvö keppnistímabilin. Stjórn KKÍ 2015-17 Bryndís Gunnlaugsdóttir Einar Karl Birgisson Eyjólfur Þór Guðlaugsson Erlingur Hannesson Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir Guðjón Þorsteinsson Lárus Blöndal Páll Kolbeinsson Rúnar Birgir Gíslason Kostið var í eftirfarandi nefndir: Aga-og úrskurðarnefnd Ingimar Ingason, formaður Þórólfur Þorsteinsson, varaformaður Björgvin Björnsson, varaformaður Sigríður Inga Viggósdóttir Kristinn G. Kristinsson Árni Helgason Áfrýjunardómstóll Einar Hugi Bjarnason, formaður Jóhannes Karl Sveinsson Sævar Sævarsson Áfrýjunardómstóll – varamenn María Káradóttir Nökkvi Már Jónsson Bryndís Gunnlaugsdóttir Skoðunarmenn reikninga Gísli Friðjónsson Guðmundur Sigurbergsson Helstu breytingar Minnibolti og 11 ára Nýtt fyrirkomulag var samþykkt og verður yngriflokka mót opnari og sveigjanlegri. Einnig verður keppni í yngstu flokkunum þannig háttað að allir fá að spila meira, færri leikmenn eru inn á vellinum og færri í hverju liði þar sem allir þættir stigmagnast með hækkandi aldri. 7. og 8. flokkur drengja og stúlkna Nánari útfærslum vísað til stjórnar til afgreiðslu og verða þær kynntar á næstunni. 11. flokkur drengja Ákveðið var að fella út þennan flokk og að eftir 10. flokk tæki við Drengjaflokkur líkt og Stúlknaflokkur er hjá konum. Drengja- , Stúlkna- og Unglingaflokkar Við brotthvarf 11. flokks var aldur Drengjaflokksleikmanna færður niður um eitt ár í samræmi og leika leikmenn nú tvö ár í flokknum og þrjú ár í unglingaflokki. 1. deild karla og kvenna Ákveðið var að vísa til stjórnar að leika þrjár umferðir í 1. deild karla og að í úrslitakeppni þurfi að vinna þrjá leiki í hverri umferð. Vísað til stjórnar að athuga mótahald í Domino's deild kvenna og 1. deild kvenna. Erlendir leikmenn Kosið var um reglur um erlenda leikmenn og var öllum tillögum vísað frá og því áfram sömu reglur næstu tvö keppnistímbil um að hvert lið megi aðeins hafa einn erlendan leikmann inni á vellinum hverju sinni (4+1). 2. deild og 3. deild karla Vísað til stjórnar að stofna 3. deild karl aog sameina b-lið félaga í 2. og 3. deild. Í dag telja þessar deildir 22 lið og mun getuskipting vera betri í kjölfarið og jafnari deildir.