8 maí 2015Á Körfuknattleikþinginu 2015 sem stendur yfir í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal var Ólafur Rafnsson, fyrrverandi formaður KKÍ, sæmdur Heiðurskrossi KKÍ. Ólafur lést um aldur fram árið 2013 aðeins fimmtugur að aldri. Ólafur var forseti FIBA Europe er hann lést ásamt því að vera forseti ÍSÍ. Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, afhenti Gerði Guðjónsdóttur eftirlifandi eiginkonu, Heiðurskrossinn núna rétt í þessu. Ólafur er aðeins fimmti Heiðurskrosshafi KKÍ frá upphafi en aðrir sem hafa fengið þessa æðstu heiðursviðurkenningu KKÍ eru Bogi Þorsteinsson, Einar Bollason, Einar Ólafsson og Kolbeinn Pálsson.