7 maí 2015Föstudaginn 8. maí verður uppskeruhátíð KKÍ. Fyrir tímabilið var ákveðið að lokahófið yrði með breyttu sniði í ár og í stað veislu að kvöldi til verður vinningshöfum og fjölmiðlum boðið til hádegisverðar. Þar verður tímabilið gert upp með einstaklingsverðlaunum í tveimur efstu deildum karla og kvenna. Í ár var ákveðið að bæta við einstaklingsverðlaunum fyrir 1. deild karla og kvenna og verður lið ársins, leikmaður ársins, þjálfari ársins og besti ungi leikmaðurinn valin. Búið er að boða vinningshafa og fjölmiðla og má búast við skemmtilegum viðburði í hádeginu á morgun en þá kemur í ljós hvaða leikmenn vinna til einstaklingsverðlauna fyrir tímabilið. Uppskeruhátíðin verður föstudaginn 8. maí í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal kl. 12.00. Eftirtalin verðlaun verða veitt á morgun. Domino´s deild karla og kvenna Lið ársins – fimm leikmenn Leikmaður ársins Besti varnarmaðurinn Besti ungi leikmaðurinn Besti erlendi leikmaðurinn Prúðasti leikmaðurinn Þjálfari ársins Dómari ársins 1. deild karla og kvenna Lið ársins – fimm leikmenn Leikmaður ársins Besti ungi leikmaðurinn Þjálfari ársins