8 apr. 2015
Í kvöld hefst úrslitaeinvígi 1. deildar kvenna en þar mætast deildarmeistarar Njarðvíkur og Stjarnan sem hafnaði í 2. sæti í deildinni. Leikið verður um laust sæti í Domino's deild kvenna að ári en vinna þarf tvo leiki til að sigra í einvíginu. Fyrsti leikurinn fer fram í Ljónagryfjunni í kvöld og á laugardaginn kemur þann 11. apríl kl. 16.00 fer fram annar leikurinn í Ásgarði í Garðabæ. Komi til oddaleiks verður hann þriðjudaginn 14. apríl kl. 19.15.